2
fyrir
60
mín
Meðal
erfiðleikastigTil fróðleiks
Uppskrift eftir Valgerði Grétu (IG profile @valgerdurgreta)
Innihald
1 pizzabotn
250g brauðhveiti
1 ½ tsk. Þurrger
1 tsk. fínmalað sjávarsalt
1 tsk. Sykur
220ml volgt vatn
3 msk. Ólífuolía
Ofan á pizzuna
3-4 msk. classic basil pesto frá Sacla
1-2 dl. rifinn ostur
½ fersk mozzarella kúla
rauðlaukur í sneiðum
10 svartar ólífur, skornar í sneiðar
½ avocado skorið í sneiðar
klettasalat
fersk bláber
Aðferð
1 Setjið þurrefnin í hrærivélaskál og hrærið aðeins í, velgið vatnið og hellið saman við þurrefnin á meðan vélin vinnur rólega, bætið ólífuolíunni við strax á eftir. Leyfið hrærivélinni að hnoða deigið í 5 mínútur. Takið deigið þá úr skálinni og mótið kúlu. Penslið eða spreyið olíu í skál og setjið deigið ofan í, hyljið með rökum klút eða plastfilmu og látið hefast í 45 mín.
2 Á meðan deigið hefast er gott að gera áleggið tilbúið. Skerið rauðlaukinn í tvennt og svo þunnar sneiðar. Skerið rest af grænmetinu og setjið til hliðar.
3 Forhitið ofninn eins hátt og hann kemst, minn fer upp í 300°C en þessi er örugglega líka geggjuð í úti pizzaofnana.
4 Stráið smávegis af hveiti eða maísmjöli á borð og takið deigið úr skálinni. Mótið pizzabotninn með höndunum en ég mæli síður með því að nota kökukefli í verkið þar sem það skemmir fyrir lyftingunni á deiginu í ofninum.
5 Smyrjið pestóinu á botninn en skiljið smá kant eftir. Stráið rifnum osti yfir pestóið og klípið bita af mozzarella kúlunni og raðið á botninn. Raðið rauðlauknum og ólífunum á pizzuna og bakið þangað til þið teljið pizzuna tilbúna, tíminn fer algerlega eftir ofnum og hitastigi.
6 Setjið pizzuna á bretti eða fat og raðið avocado á hana, stráið því næst klettasalati og ferskum bláberjum yfir.

Vættu matarlyst þína með okkar
Pestói
-
Sumarlegar kjötsamlokur með spicy pestói
-
Brauðbollur með rauðu pestói, ólífum og rifnum osti