4
fyrir
100
mín
Meðal
erfiðleikastigInnihald
700g brauðhveiti
350ml volgt vatn
3 tsk. þurrger
1 msk. sykur
2 tsk. hvítlauksduft
2 tsk. fínt mulið sjávarsalt
3 msk. kaldpressuð ólífuolía
4-5 msk. Sun dried tomato pesto frá Sacla (rautt pestó)
100g svartar ólífur, smátt saxaðar
1 egg + 2 msk. Sun dried tomato pesto frá Sacla
Rifinn ostur, magn eftir smekk
Aðferð
1 Setjið þurrefni í hrærivélaskál og velgið vatnið. Setjið krókinn á og hrærið aðeins upp í þurrefnunum. Setjið vatnið saman við ásamt ólífuolíunni og pestóinu. Látið vélina hnoða deigið í að minnsta kosti 5 mínútur. Því lengur sem það er hnoðað, því betra.
2 Setjið saxaðar ólífur þá saman við og hnoðið áfram í 2 mínútur. Takið þá deigið upp úr skálinni og mótið kúlu. Ég spreyja smávegis af olíuspreyi í skálina, set deigið ofan í og spreyja smá yfir það svo það klessist ekki við plastfilmuna sem ég legg svo yfir skálina. Látið hefast á hlýjum stað í 40 mín.
3 Takið þá deigið úr skálinni og klæðið 2 bökunarplötur með bökunarpappír. Mótið kúlur úr deiginu. Til þess að hafa bollurnar jafnar vigta ég hverja og eina en það er í raun óþarfi ef þið nennið því alls ekki. Hver bolla hjá mér var um 60g. Raðið bollunum á bökunarplöturnar.
4 Hitið ofninn á undir og yfirhita í 45°C. Úðið ofninn að innan með vatni. Setjið plöturnar inn og úðið létt yfir bollurnar með vatni. Hefið í ofninum í 30 mín. Takið þá bollurnar út og hitið ofninn í 210°C.
5 Sláið eggi saman við pestó og penslið bollurnar, stráið rifnum osti yfir þær. Bakið í 10-14 mín. Berið fram með pestói eða öðru góðu áleggi. Þær eru framúrskarandi með góðri súpu.

Vættu matarlyst þína með okkar
Pestói
-
Pestó pizza með avocado, klettasalati og bláberjum
-
Sumarlegar kjötsamlokur með spicy pestói