RÆTUR OKKAR
Saclà, Famiglia Italiana dal 1939
Það var árið 1939 sem Secondo Ercole og eiginkona hans Piera Campanella fengu einfalda hugmynd sem engum hafði dottið í hug fyrr. Secondo vissi að Asti-héraðið, sem staðsett er í Tanaro dalnum (Piedmont svæðið, Norður-ítalíu) var frjósamt svæði, og hann hóf að safna fersku hráefni frá bændunum á svæðinu svo þess mætti njóta allt árið – jafnvel þegar ferskt grænmeti væri ekki lengur á boðstólum – og varðveita bragðgæði þess.
Það var á á þessum uppgangstímum sem Sacla kynnti til sögunnar steinlausar ólífur og varð frumkvöðull að því að taka í notkun glerkrukkur með skrúfuðu loki fyrir sýrðar vörur. Þessar glerkrukkur, sem voru þá nýlunda á Ítaliu, hafði Lorenzo Ercole komið með frá Ameríku. Lorenzo er sonur Secondo og Piero og er í dag forstjóri fyrirtækisins Sacla en einnig Cavaliere del Lavoro.
Sacla ólífur, antipasti í olíu og súrsað grænmeti urðu þekktustu vörumerki Sacla á áttunda áratugnum þegar fyrirtækið auglýsti í þættinum Carosello. Þáttur sem hafði rutt brautina fyrir auglýsingar í sjónvarpi og ógleymanlegar laglínurnar hljómuðu um Ítalíu; „Olivolì, Olivolà, Olive Saclà!“
Á níunda áratugnum litu dagsljósið mikilvægar nýjungar; pestó- og pastasósur Sacla, sem byggðu á hinni rómuðu matarhefð Ítalíu.
Eftir hinn frábæra árangur heima á Ítalíu fór Sacla að færa út kvíarnar á erlendum mörkuðum og markaðsetti ekta ítalskan mat, þar sem sameinaðar voru stöðugar nýjungar og fjölbreytileiki ítalskrar matargerðar. Fyrstu dótturfélögin voru stofnuð í Bretlandi (1991), Frakklandi (1995) og Þýskalandi (1999).
Áfram kemur Sacla með nýjar vörur og bætir í úrvalið af pastasósunum – breytir sólþroskuðum, ítölskum konfekttómötum í frábærar sósur, bita fyrir bita. Þegar hér er komið hefur Sacla náð að komast inná rúmlega 60 markaðssvæði, með þétt net sölu- og samstarfsaðila um allan heim og árið 2011 er enn eitt dótturfélagið stofnað og nú í annarri heimsálfu (USA).
Saclà heldur áfram að vaxa og nýtt svæði í Castello di Annone (Asti) hefur verið opnað nú þegar.
Í dag er það aðal vöruhúsið og rýmar 16.200 pallettur. Á næstu árum munum við halda áfram að þróa og stækka svæðið með byggingu sem verður 26.500 fm að flatarmáli sem hýsa mun allar okkar framleiðslu og áfyllingarlínur (ein framleiðslulína er þegar uppsett og í notkun).
Sacla hefur ætíð verið fjölskyldurekið fyrirtæki og er í dag stjórnað af annarri og þriðju kynslóð Ercole-fjölskyldunnar (á myndinni er Chiara Ercole, aðstoðarforstjóri og dóttir Lorenzo): ástríða þeirra og dálæti á hefðbundnum, ekta ítölskum mat er, nú sem fyrr, drifkraftur tækniframfara og vöruþróunar.